Flettingar í dag: 2
Gestir í dag: 2
Flettingar í gær: 53
Gestir í gær: 21
Samtals flettingar: 196541
Samtals gestir: 68992
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 01:04:07

Færslur: 2012 Janúar

21.01.2012 21:14

Þorraskraut

Þá er þorrinn geginn í garð.  Hann kom mjög fallegur inn, snjólaus og hlýr.  En á öðrum degi þorra bar annað við, það moksnjóaði, fallegum snjó, og gróðurinn var mjög fallegur en ég gleymdi að ég ætti myndavél og því eru engar myndi núna.

En ég for að husga að ekki myndi ég eftir að til væri þorra skraut, svo ég ákvað að prufa að skreyta aðeins, bara smá, en ég var heillengi að dunda mér við þetta.

En svona koma það út.



Já, ég sat seinnipartinn í dag og bjó til hnykla úr lopa afgöngum. 

Að vísu þarf ég að finna mér annað kerti en það kemur ekki að sök.

Hilsen frá Þóru Björk sem er í letikasti.

05.01.2012 23:36

Jæja

Gleðilegt ár öllsömul.

Þá hefur hversdagsleikinn tekið við.



Erna, Haukur og Unnur farin suður og við hin til vinnu hér eystra.


Þessir tveir eru heima með mér.




Fyrst borðuðum við forréttinn, en hann framleiddu þær Erna og Unnur á meðan ég sat slök í gömlum stól inni í sofu.  Skrapp að vísu aðeins fram í eldhús og smjörsteikti humar en það er ekkert til að skrifa um.

Strax að forréttinum loknum hurfu strákarnir út á brennu.



Þeir voru sko brennuvargarnir ásamt Jóni og Arnari.



Þarna er Haukur að skvetta á eldinn.



Að sjálfsögðu komu þrýstiloftsflugvélar og skemmtu okkur.  Eða voru þetta bara venjulegar rakettur?



Olíu kastað á brennuna um leið og ein springur, sést í nokkra bæjarbúa fylgast með.



Við hittum Bjarna úti á brennu, hann varð dálítið hissa.  Ég veit ekki hvort það var af því að Erna var með myndavél.



Eftir aðalréttinn og áramótaskaupið fengum við okkur eftirrétt og kaffi.

Því næst:



Sáum við gamla árið fara og það nýja koma í staðinn.



Erna uppgötvaði takka á vélinni sem hún gat hreinlega orðið myndaóð á nokkrum sekúntum og tekið tugi mynda á meðan á því stóð.



Útbæingar að skjóta upp.  Blysin gjægast yfir hæðina.



Við skutum líka upp og fengum svo góða gesti, þau komu með bombu með sér.



Þarna erum við ásamt Þórunni og Sveini, Unnur að taka mynd og Erna tók þessa mynd af okkur.



Þarna voru innbæingar á ferð, það var eins og Laufást stæði í ljósum logum.

Slæ botninn í þetta að sinni.

Hilsen frá Þóru Björk sem lögð er af stað inn í árið 2012 eins og þið hin.

  • 1
Flettingar í dag: 2
Gestir í dag: 2
Flettingar í gær: 53
Gestir í gær: 21
Samtals flettingar: 196541
Samtals gestir: 68992
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 01:04:07