21.01.2012 21:14
Þorraskraut
En ég for að husga að ekki myndi ég eftir að til væri þorra skraut, svo ég ákvað að prufa að skreyta aðeins, bara smá, en ég var heillengi að dunda mér við þetta.
En svona koma það út.

Já, ég sat seinnipartinn í dag og bjó til hnykla úr lopa afgöngum.
Að vísu þarf ég að finna mér annað kerti en það kemur ekki að sök.
Hilsen frá Þóru Björk sem er í letikasti.
05.01.2012 23:36
Jæja
Þá hefur hversdagsleikinn tekið við.

Erna, Haukur og Unnur farin suður og við hin til vinnu hér eystra.


Fyrst borðuðum við forréttinn, en hann framleiddu þær Erna og Unnur á meðan ég sat slök í gömlum stól inni í sofu. Skrapp að vísu aðeins fram í eldhús og smjörsteikti humar en það er ekkert til að skrifa um.
Strax að forréttinum loknum hurfu strákarnir út á brennu.

Þeir voru sko brennuvargarnir ásamt Jóni og Arnari.

Þarna er Haukur að skvetta á eldinn.

Að sjálfsögðu komu þrýstiloftsflugvélar og skemmtu okkur. Eða voru þetta bara venjulegar rakettur?

Olíu kastað á brennuna um leið og ein springur, sést í nokkra bæjarbúa fylgast með.

Við hittum Bjarna úti á brennu, hann varð dálítið hissa. Ég veit ekki hvort það var af því að Erna var með myndavél.

Eftir aðalréttinn og áramótaskaupið fengum við okkur eftirrétt og kaffi.
Því næst:

Sáum við gamla árið fara og það nýja koma í staðinn.

Erna uppgötvaði takka á vélinni sem hún gat hreinlega orðið myndaóð á nokkrum sekúntum og tekið tugi mynda á meðan á því stóð.

Útbæingar að skjóta upp. Blysin gjægast yfir hæðina.

Við skutum líka upp og fengum svo góða gesti, þau komu með bombu með sér.

Þarna erum við ásamt Þórunni og Sveini, Unnur að taka mynd og Erna tók þessa mynd af okkur.

Þarna voru innbæingar á ferð, það var eins og Laufást stæði í ljósum logum.
Slæ botninn í þetta að sinni.
Hilsen frá Þóru Björk sem lögð er af stað inn í árið 2012 eins og þið hin.
31.12.2011 17:25
Síðustu dagar ársins
Nú er þetta ár að klárast og ákvað ég að rifja aðeins upp alla vega s.l. mánuð, eða hluta af honum.
Mikil gleði hefur verið á heimilinu síðan allir yrðlingarnir mínir komu í hús.
Við erum búin að eta mikið en það hefur verið hefð fyrir því undan farin ár á þessu heimili á þessum árstíma.
Og vorum við svo gráðug að við átum hluta af aðventukransinum.

En þannig er mál með vexti að tómatplönturnar mínar vou alveg búnar á því og þáðu ekki næringu lengur svo ég tíndi af þeim afurðina og skreytti aðventukransinn með þeim og um leið og þeir sýndu lit, voru þeir etnir. Restin af tómutnum sést á myndinni hér að ofan. Smakkaðist mjög vel.
Annars voru jólin nokkuð hefðbundin.

Já, meira að segja toppurinn á jólatréinu brosti sínu blíðasta.

Að vanda stilltu þau sér upp. Og rifjuðu síðan upp hver stærðarmunurinn var á þeim hér áður fyrr.

Áttum yndisleg jól en Ragnheiður, Tóti og krakkarnir ásamt Kjartani Hávarði komu í heimsókn á jóladag.

Við Ragnheiður búnar að ganga frá eftir matinn :)

Systkinin Ragnheiður og Kjartan slök eftir matinn.

Jakob glaður með nýju tölvuna hans Hauks.

Tóti búin að fá sér kaffi í könnu.
Fleiri myndir í albúmi.
Svo þann 28 desember kom Unnur "heim" .
Og núna eru Unnur og Erna að útbúa áramótakvöldmatinn.

Hér kemur mynd af Unni og Ernu við undirbúnininn. Glæsilegt.
Á meðan situr restin af heimilsfólkinu og spjallar inni í stofu.
Gleðilegt ár allir saman og takk fyrir innlitið á árinu, hvort sem er í Vinaminni (heimilið) eða á vefsíðuna.
Hilsen frá Þóru Björk sem situr slök í gömlum stól inn í stofu.
11.12.2011 22:09
Andlaus og vitlaus
Og ég komst að því eftir að vera búnin að vera í íhugun í 3 mánuði og gera ekkert nema að skoða mig að innan og utan og allan hringinn í smásjá, að ég er bæði andlaus og vitlaus.
Eftir þessa uppgötvun hef ég hugsað, þetta var mikð rannsóknarefni sem tók heila þrjá mánuði og svo kom ekkert út úr því. Hvernig er þá vinnan sem skilar einhverju?????
Já, maður hugsar það eftir þennan tíma með sjálfri sér. Svo ég komst að því að hætta bara alveg að vera með sjálfri mér.
Fór fram í eldhús og skellti í eina smáköku uppskrift og viti menn að þegar ég ætlaði svo að gefa gesti sem að garði bar smákökur með kaffinu þá voru þær búnar, ég var greinilega ekki ein með sjálfri mér, allavega ekki lengur, því einhver át kökurnar.
Þannig að nú er ég bara sátt við það að vita að einhverjir læðist í kökurnar svo ég ákvað að baka aðeins meira og nú bíð ég bara spennt eftir því hvort þær klárist.
Hilsen frá Þóru Björk sem íhugar að auka fjölbreytnina í smákökunum. :)
08.11.2011 23:20
Árin 1899 og 1968
"Stöðvarfjörður. Hann er einna minstur af öllum fjörðunum, tæp míla að lengd, og útroeði ekki rrn'ög mikið. Ganga úr firðiuum um 20 bátar alls, flestir frá yztu bæjunum: Kirkjubóli, Löndum, Hvalnesi og Kambanesi. Bátarnir eru færeyskir eða norskir (með Harðangurs-lagi); menn héldu hér, að stærri mundu vera hentugri. Brim er töluvert. Fjörðurinn sjálfur er innantil d,ýpstur um 40 fðm.r grynnri út í mynninu.
Oftast er róið út úr firðinum og oft djúpt, allt að 2 mílum1 út frá annesjum.
Straumar eru harðir og uppihöld fara oft mjög í kaf. Norðurfall er harðara en suðurfall (aðfall) og fiskast betur á suðurfalli. Hraun er víða i botni.
Veiðarfærin eru lóðir, með aðeins 500 önglum; stundum eru 2 festar saman og höfð 3 uppihöld.
Lóð er fyrst farið að brúka að ráði á síðari árum. Annars brúka menn mikið færi með frönskutn hneifum og beita annaðhvort ljósabeitu, eða hafa bera öngla, og liggja of't við stjóra (kraka). Stöðfirðingar þykja beztir fiskimenn á færi á Austfjörðum.
Lúðuveiði er oft góð og þykir ekki þverra; úr lúðunni verka menn oft rikling. Við lúðu- og skötuveiði brúka menn haukalóðir. Alt þetta sýnir, að veiðiaðferðir eru hér fornlegri en víðast annarstaðar sandraaðki inst í firðinum. Um fiskigöngur er það
að segja, að sunnangöngur þykja vera drýgstar og þorskur kemur þangað oft ógotinn síðla vetrar. í á þyrsklingi (rauðum úr þara), sem tengist
hafði úti í fjarðarmynnrau, voru aðeins krabbar
(margfætla, Hyas, sem virðist vera algeng þorskog þyrsklingsfæða yið Austurland, á sumrin að minsta kosti). Hrognkelsi verður vart við og ercnæsta líklegt, að þar geti verið töluvert af þeim, því þarar eru þar víst allmiklir, en ekki er reynt að veiða þau. Sild gengur illa inn í fjörðinn, því hann er svo grunnur yzt. Ensk lóðaskip hafa undanfarin ár verið þar á djúpmiðum, en ekki í ár. Um sel er litið."
"Fyrsta síldin kom til Stöðvarf jarðar sumarið 1968
EINS og skýrt var frá í gær kom fyrsta síld sumarsins til Stöðvarfjarðar á sunnudagskvöld.
Það var vélbáturinn Heimir SU 100, sem kom með síldina, en skipstjóri á Heimi
er Árni Gíslason, svo skemmtilega vill til, að það var einnig Árni Gíslason, sem kom með
fyrstu síldina í fyrra og þá einnig til Stöðvarfjarðar. I fyrra var hann skipstjóri á vélbátnum Gígju.
Margt fólk hafði safnazt saman á hafnarbakkanum, er Heimir lagðist upp að og var
fljótlega hafizt handa um að losa bátinn.
Aflinn var um 400 lestir og var síldin óvenju lega feit. Reyndist fitumagn hennar við mælingu vera um 20%, sem er meira en vaenta má á þessum árstíma. Fékkst því mikið lýsi ur síldinni á þeim 1 1/2 sólarhring, sem bræðslan stóð yfir. Heimir er eini báturinn, sem nú er gerður út á síld frá Stöðvarfirði.
Tveir aðrir bátar eru gerðir þa'ðan út á snurvoð. Unníð er nú að undirbúningi meiri síldarmóttöku á Stöðvarfirði, bæði hjá Síldarverksmiðjunni Faxa og hjá Söltunarstöðinni Steðja
Má segja, að allt sé tilbúið, að öðru leyti en því, að tunnur vantar enn til síldarsöltunar"
Hilsen frá Þóru Björk sem er einhversstaðar.
24.10.2011 22:32
30 ár
"Fimmtudaginn 24. september 1981 kl. 21:30 var Stöðvarfjarðardeild RkÍ stofnuð, hér í Samkomuhúsinu.
Formaður var Björn Kristjánsson og var deildin stofunuð um öldrunarmál og sjúkrabíl.
Fyrsti sjúkrabílinn var keyptur eftir 1983"

Jói Jó, fyrsti gjaldkeri deildarinnar og Bjössi Kristjáns, fyrsti formaður deildarinnar.
"Árið 1995 hættu allir í stjórn félagsins og ný stjórn tók við, og 1998 keypti deildin Lúkas bílaklyppur sem kostuðu 1,3 milljónir og afhentum við slökkviliðnu þær til afnota ásamt sjúkrabílnum sem tækjabíl og fórum í samstarf við Fáskrúðsfjörð um sjúkrabílinn þar.
Eftir þetta breyttist áherslur hjá deildinni og hún fór að snúa sér meira að mjúkumálunum."

Auðvitað setur maður inn mynd af veisluföngum. Heitu réttirnir eru undir álpappír.

Það voru frjáls framlög í kaffisjóðinn. Þessi litla dama hafði töluverðar áhyggjur af því hvernig hún gæti komið til okkar þar sem foreldrar hennar voru að vinna. En auðvitað kom hún.

Þessi var svo heppinn að koma í heimsókn til hennar Boggu Jónu með foreldrum sínum og hún dreif þau með sér í kaffi (auk þess varð hún að mæta á svæðið :)).

Prinsessurnar Hugdís, Margarette og Hanna Dís.
"Litla Rauða kross búðin er elsta búðin sinnar tegundar hér á Austurlandi en nú eru þær orðnar 4. En okkar búð er bæði fata- og nytjahlutabúð. Auk þess sem við seljum lopa. Og er hún alltaf opin frá 14:00 -16:00 á laugardögum, nema annað sé auglýst. Rósa hefur haldið utan um það. Við höfum ætlað að setja upp skráningardagatal til að fá fleiri til að vinna í búðinni, en það mun koma að því að við framkvæmun það. Trúlega mun það hanga upp á Brekkunni þannig að fólk gæti skráð sig á þá daga sem það gæti unnið. Auk þess flokkum við og förum yfir þau föt sem koma inn úr gámnum, séu þau ekki sérstaklega merkt RVK."

Fólk að tínast í salinn og að veisluborðinu.
"Ungmennastarf hefur verið undanfarna vetur og í haust hafði Þóroddur Helgason samband við mig og bauð okkur að taka að okkur félagsmiðstöðina með ungmennastarfinu. Ákváðum við að prufa þetta og erum við þrjár sem komum að þessu verkefni. Með því að taka þetta að okkur, höfum við tryggt deildinni talsverðar aukatekjur. Síðastliðin ár höfum við sent krakka í sumarbúðir, fyrst í Löngumýri í Skagafirði svo s.l. tvö ár í Alviðru við Selfoss. Einnig höfum við tekið þátt í leiknum á Flótta sem er byggður upp með það í huga að krakkar geti fengið nasasjón af þvi hvrenig það er að vera flóttamaður. Bæði er leikurinn búin að vera á Eiðum, upphaflega samkvæmt okkar beiðni, og eins fór einn frá okkur á alþjóðlegan flóttaleik sem var í haust fyrir sunnan."

Þetta eru þau Freydís Þóra sem er að segja frá Á flótta sem haldin var á Eiðum, Katrín Ragna að segja frá sumarbúðunum í Alviðru og Leó Örn að segja frá alþjóðlega flóttaleiknum en þá var hann að taka þátt í annað sinn í leiknum og var því folald.
"Síðustu ár höfum við verið með 6 heimsóknavini sem hafa farið í heimsóknir einu sinni í viku í 1klukkustund í senn til ákveðins hóps"

Auðvitað kom einn úr aðalstjórn og heiðraði okkur með nærveru sinni.

Nokkrir gestir á spjalli.

Krakkarnir komu sér vel fyrir í spilahorninu okkar.
"Tombólu börnin hafa verið dugleg að safna og gefa félaginu. M.a. safnaði yngri hópur í ungmennastarfinu, þ.e. 6. - 8. bekkur rúmum 50.000 kr. handa krökkum á Haítí."
Því miður, í stressikastinu, gleymdi ég að kalla þau upp.
"Verkefnið "Föt sem framlag" hefur undið upp á sig. Framleidd eru aðallega föt á 0 -1 árs og auk þess er núna verkefni í gangi fyrir börn á aldrinum 1 -12 ára, en þar er um að ræða fatnað sem sendur er til Hvíta Rússlands.
Síðastliðna tvo vetur, eða þegar stelurnar voru 7 - 11 ára byrjuðu þær í prjónahóp og hittust 2 mánuði og prjónuðu í fatapakkana Föt sem framlag.
Við höfum verið í samstarfi við Breiðdælinga og Fáskrúðsfirðnga með Haustfagnað eldri borgara á Suðurfjörðum en það er þannig að við hittumst einu sinni á hausti og drekkum kaffi og höfum gaman. Í haust eiga Fáskrúðsfirðingar leikinn.
Við eigum frábæran fjölda af sjálboðaliðum sem við erum mjög stolt af "

Fólk að horfa á myndasýninguna sem við vorum með, hinir að spjalla.


En þetta var svona úrdráttur úr því sem ég sagði á laugardaginn. Það sem er innan gæsalappa.
Hilsen frá Þóru Björk sem horfið út í stjörnubjart kvöldið.
25.09.2011 21:35
Þá er júní búin
Hér koma myndir af Björgvini með börnin sín.

Svona mynd var tekin af þeim þegar Jesse kom síðast til landsins 1998.

Við tókum okkur göngutúr um bæinn.

Þarna voru þau orðin "leið" á að heyra alltaf smellinn í myndavélinni.

Það var mikið borðað og mikið hlegið þessa daga.

Hér eru systkinin á góðri stundu.
Við ákváðum af því að Jesse varð 30 ára rétt áður en hún kom og Haukur útskrfifaðist sem einkaflugmaður, að halda þeim smá teiti og komu nærstaddir ættingar.

Haukur fékk þessa fínu flugmannshúfu og gítarstand og Paul skemmti sér vel yfir því.

Erna að hjálpa Jesse að setja á sig armband sem hún fékk að gjöf.
Svo stukku strákarnir út í búð og keyptu hákarl handa Paul.

En myndin af Axel sýnir að helgin var ein gleði út í gegn.

Það er ekki hægt annað en að skella einni inn sem tekin var af þeim feðginum þar sem þau "stóðu" og voru að ræða málin.

Og auðvitað var Hauki og Unni stillt upp til myndatöku.

Svo er hér mynd af frændsyskinunum en því miður var Ásta farin þegar þessi mynd var tekin.

Jesse, Örvar Ingi, Haukur, Axel og Erna.

Og þarna eru þær systur úti á Keflavíkurflugvelli.
Fleiri myndir eru í myndaalbúmi sem ég á eftir að merkja.
Eftir þetta fór ég í sumarfrí og eyddi þvi að mestu fyrir sunnan fyrir utan þá daga sem Erna og Haukur áttu sitt sumarfrí en þá vorum við heima.
Hilsen frá Þóru Björk sem er hér enn.
20.08.2011 21:13
Júní að stórum hluta.
Ég hef varla gefið mér tíma til að setjast niður við tölvu í sumar.
En, það sem af er sumri er búið að vera ansi annasamt. Ég bað sérstaklega um að vera ekki í fríi í júni, þar sem ég hafði verið í fríi á þeim tíma s.l. tvö sumur en varla var ég búin að glopra þessu út úr mér þegar við fengum þær fregnir að frændi Björgvins og konan hans væru að koma til landsins í fyrsta sinni og langaði að skoða þá staði þar sem forfeður þeirra bjuggu áður en þeir yfirgáfu landið og fóru til Kanada. Það vill nefnilega svo skemmtilega til að hjónin eru bæði ættuð frá Íslandi.
Og svo fór að Björgvin varð fararstjóri þeirra um landið og fóru þau meðal annars vestur á firði (suðurfirðina) en ekki komst ég með, En ég hef aldrei vestur komið fyrir utan að ég fór tvisvar að Þúfum í Vatnsfirði áður en Djupið var opnað bílum. Þá um Þorskafjarðarheiði og Steingrímsfjarðarheiði.
Það var reglulega gaman að fá þau í heimsókn og stoppuð þau hér á Stöðvarfirði í fimm daga.

Þegar Narfinn var nýkomin að, vorum við stödd niður á bryggju og Guðni gaf okkur tvær vænar ýsur sem ég fór með heim og gerði að og flakaði og eldaði og voru þeim gerð góð skil. Og ég segi eins og er, að það er ansi langt síðan ég hef fengið svona góða ýsu.
Gestirnir eru mikið fiskifólk og þótti ýsan afbragsgóð. Var nýbúin að gefa þeim glænýjan þorsk sem líka vakti mikla lukku.

Hér eru þau alsæl í kuldanum í vor (og sumar), ekkert orðið grænt þótt komið sé fram í júní.

Að sjálfsögðu kíktum við í Steinasafnið í ausandi rigningu.

Eins og sést á glugganum á sólskálnum í Sunnuhlíð, var hreint ausandi rigning.

Við kíktum suður í skriður.

Við sáum hreindýr við Kelduskóga í Berufirði. Og það voru fleiri túristar að taka myndir af þeim en við og okkar túristar.

David fannst sniðugt hvernig Íslendignar "geyma" mölina í vegina.

Þarna var allt svart af ösku.

Við skoðuðum Dyrhóley og margt, margt fleira. Auk þess sem Björgvin fór með þeim Vesturlandið, Vestfirðina og Norðurland. Ég fer bara með næst.
Nú svo bauðst mér að fara í gönguferð um Hornstrandir með vinum mínum sem buðu upp á slíka ferð, en ekki komst ég. Og hefur mig lengi langað að kíkja þangað þó ekki væri nema til að heimsækja þá vini mína sem hafa verið staðahaldarar þarna í nokkur sumur, en nú vill svo til að þau verða það ekki lengur.
En þarna hafa verið "krakkar" héðan staðahaldarar til nokkurra ára og bróðir hans og hans kona séð um ferðir þarna um svæðið.
Hlisen frá Þóru Björk sem segir ykkur seinna frá seinni hluta júní.
