Blogg
19.3.2010
Árshátíðin 18.03.10.
Að vísu er fyrsti þáttur nokkuð dökkur, en það er bara á meðan þau eru ofan í gryfjunni. Smellið á hlekkinn til að horfa:
Persónur og leikendur:
Kúrekinn: Fjölnir Helgi Hrannarsson
Gvendólín Gloss: Jóhannes Kristinn Hafsteinsson
Lovísa Lokkan: Jónína Guðný Jóhannsdóttir
Vöttur Erpur: Haraldur Sigurjón Þorsteinsson
Gulli Gikkz: Eyþór Ármann Jónasson
Putti Gikkz: Viktor Breki Þorvaldsson
Sögumaður og píanóleikari: Friðrik Júlíus Jósefsson
Barþjónn: Arney Hildur Margeirsdóttir
Billi Buff: Kristján Agnar Vágseið
Faxi: Borghildur Jóna Árnadóttir
Rauður: Björgvin Valur Guðmundsson
Höfundur og leikstjóri: Björgvin Valur Guðmundsson
Hljóðsetning: Björgvin Valur Guðmundsson
Aðstoðarleikstjóri: Borghildur Jóna Árnadóttir
Förðun: Solveig Friðriksdóttir og Borghildur Jóna Árnadóttir
Fatnaður.: Aðallega Litla Rauða kross búðin á Stöðvarfirði
18.3.2010
Lögráða!

Er ekki við hæfi að setja inn mynd af ykkur þegar þið voruð 10 ára?

Eða Axel að koma úr sjósundi og Haukur horfir á.

Eða þegar "litlu" drengirnir mínir kláruðu 10 bekk.
Og núna eru þið í Fjöltækniskóla Íslands.
Hilsen frá Þóru Björk sem er ekki skráð lengur í kerfinu með börn á framfæri.
14.3.2010
Listaverk

Ég sá þessa félaga kíkja yfir girðinguna umhverfis sparkvöllinn og ákvað að fara nær og skoða.

Þarna er þessi fína fjölskylda og hefur komið víða að, eins og sést á rákunum. Sá stærsti skartar bleikri húfu og bleikum trefli, en það sét ekki nógu vel.

Þessa þrjá fann ég fyrir innan sparkvöllinn.
En bíðið við, hvað er þetta?

Þetta ku vera belja með horn. Virkilega falleg skepna.

Þessa krakka fann ég fyrir utan Bakkagerði, það var nóg að gera hjá þeim.

Þegar ég kom inneftir, sá ég þessa, þar sem þeir stóðu fyrir neðan Varmahlíð, ekki veit ég hvort Þórunn og Sveinn voru fyrirmyndin, alla vega komu þeir ofan úr garði hjá þeim, eftir rákunum að dæma og flott eru þau.

Þegar ég leit upp að Varmahlíð, blasti þetta við mér yfir húsþakoð og þegar ég leit í hina áttina..

Þá sátu þessir þar, já það er greinilegt að ábúendurnir eru komnir heim.
Hilsen frá Þóru Björk sem skoðaði listaverk í dag.
14.3.2010
Sunnudagsmorgunn
Ég vaknaði í morgun og var bara nokkuð spræk, tætti út í veðrið og tók nokkrar myndir.

Já, svona var veðrið þegar ég kom út, sannkallaður jólasnjór.

Ég horfði inn að Varmahlíð og sá Svein á göngu.
Enginn á ferðinni hér heim að húsi.
Og að lokum lítið tré.
En nú er orðið bjart og ekki langt í það að það fari að rigna, held ég.
Læt þetta duga í bili.
Hilsen frá Þóru Björk sem fékk ofbirtu í augun í morgun.
6.3.2010
Lonuveiði
Þessu stal ég frá HB-Granda. Maggi hringdi í mig þegar hann sigldi hér framhjá á leið til Vopnafjarðar, en það var á fimmtudagskvöld um kl. 23.30.
Glimrandi gott að vera kominn aftur í slaginn
Víkingur AK er nú á leið til Vopnafjarðar með fullfermi af loðnu eða um 1.400 tonn sem fengust í gær og í dag suðvestur af Malarrifi á Snæfellsnesi. Að sögn Magnúsar Þorvaldssonar skipstjóra er þetta fyrsti fullfermistúrinn hjá Víkingi á loðnuvertíðinni. Ákveðið var að senda skipið til veiða í síðustu viku í því skyni að auka líkurnar á að hægt yrði að nýta sem allra mest af loðnukvóta HB Granda til hrognatöku.
Magnús Þorvaldsson er gamalreyndur í hettunni en hann var síðast
með Sunnuberg NS þegar hann var fenginn til þess að vera með Víking ef
sú staða kæmi upp að nota þyrfti skipið. Magnús var síðast á
loðnuveiðum með Víking fyrir tveimur árum en í fyrra var skipið notað
til flutninga á makrílafla og fór þá tvo túra með makríl til Færeyja og
einn til Vopnafjarðar.
,,Það er glimrandi gott að vera kominn í slaginn að nýju og það þrátt fyrir að það hafi verið skítabræla frá því að við fórum til veiða fyrir tæpri viku," sagði Magnús er tíðindamaður heimasíðunnar ræddi við hann í dag. Reyndar gekk erfiðlega að ljúka spjallinu því fyrst er hringt var í Magnús var hann að búa sig undir að kasta og næst þegar samband náðist var verið að dæla úr nótinni í haugabrælu. Því verki lauk um kl. 17 og í framhaldinu var stefnan tekin til Vopnafjarðar og ákveðið var að fara suðurleiðina.
,,Þetta var búið að vera hálfgert bras frá því að við fórum til veiða. Við höfum verið að veiða úr litlum torfum og veðrið hefur ekki hjálpað til. Það var fyrst í dag sem skipin voru að fá ágætis köst og við náðum að fylla með um 400 tonna kasti um 12 mílur suðvestur úr Malarrifinu. Fyrsta fullfermið okkar en áður vorum við búnir að landa tveimur slöttum á Akranesi," sagði Magnús Þorvaldsson en þegar hann var spurður að því hvenær hann reiknaði með því að Víkingur myndi koma til Vopnafjarðar með aflann, svaraði hann einfaldlega: ,,Hvaða dagur er í dag? Miðvikudagur? Ætli við verðum ekki komnir á föstudag en annars á ég eftir að skoða það betur."
Hilsen frá Þóru Björk sem hefur gaman af að fylgjast með.

