Flettingar í dag: 83
Gestir í dag: 36
Flettingar í gær: 160
Gestir í gær: 54
Samtals flettingar: 90383
Samtals gestir: 34634
Tölur uppfærðar: 19.3.2010 22:39:41

Blogg

1.9.2009

Haustið 09

Það sést að haustið er komið, það sést á því að krakkarnir mínir eru öll farin langt að heiman í skóla.  Námið sem þau völdu sér er ekki í boði á Austurlandi.

Ég hlusta á foreldra  á höfuðborgarsvæðinu barma sér ef börnin þeirra þurfa að fara á milli hverfa í skóla.  Sjálf var ég á fimmtánda ári þegar ég yfirgaf foreldrahúsin til að fara í gaggó.  Kom aðeins einu sinni heim í helgarfrí fyrir jól.  

Og mér fannst það ekkert erfitt, en ég man alveg hvað pabbi sagði við mömmu þegar við vorum að keyra inn Reyðarfjarðaströndina:  "Þóra mín, eigum við ekki svo að fara beint niður á Eskifjörð til sýslumannsins þegar við erum búin að skila Þóru Björk upp í Eiða og fá skilnaðinn, nú er okkar hlutverki lokið."  

Mamma svaraði: "KJARTAN!"  

Þá hló pabbi.

En ég vísa á þessa grein hér.

Hilsen frá Þóru Björk sem finnst langt til krakkanna sinna.

Skrifað 1.9.2009 kl. 0:00 af Þóra Bj.Nik.

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

30.8.2009

ATH

Ákvað að setja hér inn auglýsinguna sem ég fékk áðan,  vegna hins árlega ljósakvölds sem er í kvöld.

Rómantík í rökkrinu.

"Algerlega að tilefnislausu og einungis okkur til ánægju ( og ykkur vonadi líka) ætlum við að hittast og eyða saman kvöldstund í Steinasafninu.  Kaffi og djús í boði hússins, brekkusöngur, kertaljós og kósi stemming í garðinum.  Hittumst í safninu klukkan 20.00 í kvöld.  og njótum þess að vera saman á fallegu kvöldi og sjá rökkrið færast yfir."

Álfarnir í garðinum.

Hilsen frá Þóru Björk sem ætlar að mæta á svæðið, hvað annað.


Skrifað 30.8.2009 kl. 18:47 af Þóra Bj.Nik.

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

16.8.2009

Fljótin

Ég lagði af stað í  ferðalag.....

Já svona byrjar textinn.  En satt er, ég lagði af stað í ferðalag á miðvikudaginn var.  Þannig var að vinkona mín og ég ákváðum að leggja land undir fót og skreppa norður á Siglufjörð, eða réttara sagt að Stóra Grindli í Fljótum.

Þegar við vorum komnar nokkra kílómetra norður fyrir Egilsstaði, nánar tiltekið að keyra upp Heiðarendann, skall á okkur haglél.  Við stoppuðum og horfðum á þessi ósköp og hitinn var 12 gráður.  Halló, halló var ekki allt í lagi, það var 12 ágúst.

Svo var það bara búið - við höfum sennilega ekið um einn kílómetra í haglélinu.  

Þegar við komum upp á Jökuldal, skall á okkur þvílík rigning að ég man ekki eftir öðru eins, þurrkurnar höfðu ekki við og það flaut yfir götuna og rigningin var lóðrétt.  Við keyrðum inn í þessa kafla til skiptis, þurrt (það hafði ekkert rignt á svæðinu) og helliregn.  Alveg upp undir heiði.

Við vorum komnar norður í Fljót um sex leytið á miðvikudagskvöldið, eftir að hafa stoppað víða á leiðinni og skoðað margt.  Þórarinn og Fanna urðu alveg steinhissa þegar við birtumst.  Það var notalegt að sitja þarna við snarkandi arineld og spjalla saman og horfa út.  Bóndinn á bænun handan vatnsins, var iðinn við sláttinn þetta kvöld.   Því miður sáum við ekki kvöldsólina en hún er ofboðslega falleg þarna sem hafsbrún veit í norður. 

Það var einn galli á þessari ferð, við gleymdum báðar myndavélunum heima.

Á fimmtudagsmorguninn skruppum við út á Siglufjörð í heimsókn og Þórarinn var leiðsögumaður.
Komum víða við og skoðuðum margt og meira að segja lenti ég hjá sýslumanninum sem var ekki verra, maður þarf að ath. hvernig Stöddarnir spjara sig í öðrum byggðarlögum.  Fórum svo yfir Siglufjarðarskarð til baka yfir í Fljót.  Ég hef ekki farið Skarðið síðan eg var 7 ára.

Við stoppuðum víða á leiðinn yfir skarðið, t.d. hirtum við nokkra burkna á leiðinni upp og líka á leiðinni niður, og svo kemst ég að því hvort burkninn er betri Siglufjarðarmegin eða Fljótameginn.  Það kom mér á óvart hvað vegurinn yfir er breiður og góður.

Eftir góðan hádegismat í Fljótunum, var farið í aðra skoðunarferð og nú var Þórarinn bílstjóri.

Fórum við út í Haganesvík,  þar er búið að gera upp fullt af húsum, þetta var allt í niður níðslu þegar ég fór þarna um síðast og síðan lá leiðin inn í Flókadal.

Rétt um fimm leytið kvöddum við og fórum heim, því von var á fleiri gestum um kvöldmatinn.  Við vildum leyfa þeim að leggja sig áður en að fleiri kæmu.

Þetta var mjög skemmtileg ferð hjá okkur stöllum.

Hilsen frá Þóru Björk sem er mjög sátt yfir að hafa farið norður í heimsókn.

Skrifað 16.8.2009 kl. 22:22 af Þóra Bj.Nik.

Bein slóð á færslu

5 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

9.8.2009

1978

Ég fékk senda mynd um daginn en hún birtist í Fréttablaðinu þann 1. ágúst þegar verið var að rifja upp myndir frá verslunarmannahelgum hér í denn.  Þessi mynd minnir mig að hafi upphaflega birst í Vísi.

Til gamans ætla ég að setja hana hér inn.

Þetta eru fyrir utan lögregluþjónana sem ég veit ekki hverjir eru, frá vinstri talið:  Guðni Arnars, Kalli Geir og Grettir.



Undir myndinni stendur réttilega: "Glerharðir gæjar.  Starfsfólk lögregluembætta um allt land hefur nóg að gera um mestu ferðahelgi ársins, t.d. við að hella niður áfengi.  Af myndinni að dæma hafa eigendur guðaveiganna á Úlfljóstvatni árið 1978 blandað í Coca - Cola í eins lítra glerflöskum."

Já, þeir eru vonsviknir gömlu félagarnir mínir þarna á myndinni.

Hilsen frá Þóru Björk sem var á Egilsstöðum verslunarmannahelgina 1978.

Skrifað 9.8.2009 kl. 21:28 af Þóra Bj.Nik.

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 83
Gestir í dag: 36
Flettingar í gær: 160
Gestir í gær: 54
Samtals flettingar: 90383
Samtals gestir: 34634
Tölur uppfærðar: 19.3.2010 22:39:41