Flettingar í dag: 95
Gestir í dag: 28
Flettingar í gær: 112
Gestir í gær: 45
Samtals flettingar: 90235
Samtals gestir: 34572
Tölur uppfærðar: 18.3.2010 18:36:10
Blogg
21.6.2009
Sól, sól, skín á mig...
Í dag er búið að vera mjög gott veður, þó svo að það hafi byrjað með smá súld þá var mjög hlýtt. Ég fór aðeins að hjálpa Axel að raka og hitinn var "tú mötsch" fyrir mig.
Þegar ég kom heim fór ég að dunda í garðinum, bara svona í nokkrar mínútur, maður fær samviskubit þegar maður sér garðana hjá öðrum (t.d. er ég nýbúin að aka Borgargerðið).
Ég kallaði í Björgivn sem var nýfarinn inn eftir að vera búin að liggja undir bílnum hennar Ernu og var allur í svona bílalitunum. Hann hitaði kaffi og skellti smáköku á disk og við settumst hér út í sólina og fengum okkur kaffi. Haldiði þá ekki að Siggi stjúpi hafi rölt hér inn í garð og rétt á eftir Gugga, Nanna, Ísak og stelpurnar þrjár.
Svona getur þetta nú verið sniðugt.
En hér læt ég fylgja nokkrar myndir af deginum.

Horft í gegnum tréin.

Horft til himins.

Er þokan eitthvað að stríða þarna út á firði?

Björgvin búin að stilla upp kaffiborðinu.
Takið eftir, ég á bollann en Björgvin könnuna.

Eitthvað verður maður að gera þegar sólin skín.

Siggi stjúpi kom í heimsókn, honum þótti heldur heitt og kom sér vel fyrir í skugganum.
Þegar allir voru farnir og kvöldmaturinn afstaðinn, ákvað ég að skella í rúgbrauð og gekk það ljómandi vel bakaðist fínt og alles.
Verra var með kleinurnar, fyrst ofhitnaði feitin og varð ég að skipta alveg um og svo þegar búið var að steikja kleinurnar þá uppgötvaðist að ég hefði verið heldur spar á sykurinn.
Nú er kl. orðin miðnætti og Björgivn neitar að koma inn úr góða veðrinu.....
Kannski er hann hræddur um að ég píni hann til að eta diet kleinur.
Hilsen frá Þóru Björk steikti diet kleinur í kvöld.

16.6.2009
Að skerða hár sitt
Dóttur minni þótti nóg um og pantaði klippinu og litun fyrir hár móður sinnar.
"Þetta gengur ekki mamma, þú hefur ekki farið í klippingu í meira en ár."
Jú, það var ekki alveg rétt, það var í júlí, nánar tiltekið 16 júlí í fyrra sem ég fór síðast. Þá var ég að fara í sumarfrí með "familíuna" og Sigurbjörg sys, sem er hámenntu í þessum greinum tók höfuð höfuðs ættarinnar í móðurlegg og snyrti.
En jú, rétt er það. Ansi er orðið langt síðan, en þar sem ég hef bara dundað mér við það sjálf að skerða hár mitt var það orðið ansi "ljótt" skilst mér.
Stóra stundin rann upp í morgun.
Hársnyrtirinn hafði orð á því að dóttur minni þætti ég fara ansi sjaldan í klippingu en ég tjáði mig ekkert um það. Enda mjög orðvör manneskja.
En svo kom upp sú stund að ég yfirgaf stólinn. Þá sagði hársnyrtinn: "Ég lét svona nátturulegan ljósan lit í hárið, þar sem þú ferð svo sjaldan í klippingu því þá verður ekki eins mikil rót þegar þetta vex úr."
Nú svo fékk ég svona kort, ef ég skyldi koma einhverntíman aftur. Þá gellur í konunni sem beið eftir meðferð fyrir sitt hár: "Ég panta tíma aftur eftir x langan tíma um leið og ég er búin í klippingu",
Þá svarar hársnyrtinn: "Ég bóka ekki nógu langt fram í tímann fyrir Þóru".
Hilsen frá Þóru Björk sem fór í litun þegar kreppan var skollinn á.

5.6.2009
Auglýsing
Hér kemur smá auglýsing sem ég bið ykkur um að lesa og endilega ef þið hafið tækifæri til að kíkja við.
Rauða kross búðin verður opin alla laugardaga í sumar frá kl. 14-16
Gallerí Snærós verður opið í sumar,
Steinasafn Petru er opið alla daga frá 9-18 og er aðgangseyri kr. 500
Tilkynning:
Útsala verður í Rauða kross búðinni að Fjarðarbraut 48 Stöðvarfirði, (beint á móti gömlu símstöðinni), laugardagana 6. og 13. júní frá kl. 14-16

Fatapokinn verður á kr. 500 og skór á kr.
300.
Tökum ekki kort.
Svo vil ég minna á að við erum með fatamarkað í
salthúsmarkaðnum sjá meðf. auglýsingu.
Einnig verður tómbóla haldin í sathúsmarkaðnum fram í
næstu viku, til styrktar MND félaginu
SALTHÚSMARKAÐURINN
Á
STÖÐVARFIRÐI
Föstudaginn 5. júní klukkan 17:00 opnar Salthúsmarkaðurinn á Stöðvarfirði dyr sínar í fyrsta skipti. Notið tækifærið og skoðið frábært úrval af austfirsku handverki búið til af skemmtilegu og lífsglöðu fólki.
Laugardaginn 6. júní opnar svo markaðurinn klukkan 10:00 að morgni og lokar ekki fyrr en 16:00. Þessi opnunartími gildir svo alla daga vikunnar nema annað sé auglýst sérstaklega.
Verið velkomin
Kveðja
Salthúsgengið
Flettingar í dag: 95
Gestir í dag: 28
Flettingar í gær: 112
Gestir í gær: 45
Samtals flettingar: 90235
Samtals gestir: 34572
Tölur uppfærðar: 18.3.2010 18:36:10