Flettingar í dag: 24
Gestir í dag: 10
Flettingar í gær: 149
Gestir í gær: 25
Samtals flettingar: 89564
Samtals gestir: 34329
Tölur uppfærðar: 14.3.2010 08:46:52

Blogg

21.4.2009

Skúta

Ég sat inn í stofu og var að prjóna, er mér var litið út um gluggann.

"Björgvin það er að koma skúta siglandi hér inn fjörðinn"

jú ju, svarði Björgivn.

"það er komin bíll niður á bryggju"

jú jú svarði Björgvin.  hvað bíll er það?

" Það er grár jeppi, alveg eins og bíllinn í Laufási, kannski er þetta bara hann"
og ég hugsaði hver gæti verið að koma hér inn fjörðinn.....  Það fjölgaði á bryggjunni, komnir allt að 10 bílar sem rúntuðu fram og til bage.



Þá stóð Björgivn upp til að ath. hvort ég væri að segja satt.

Hann sá það sama og ég, en bætti við, hún er alveg eins og dópskútan!

Svo silgdi skútan beint inn í höfn og tók beyjuna beint inn í smábátahöfn, ég segi "  hav ætlar hann að sigla henni í strand, hann hlýtur að þekkja til hér, víst hann keyrir svona inn í höfnina"   Já kannski er þetta Bjössi í Stöð að koma frá Norge...
Skúturnar eru vanar að læðast inn í höfnia.

En til að hafa langa sögu stutta, þá var verið að ferja dópskútuna hingað vegna "plássleysis" á Eskifirði.  Ferjumaðurinn var héðan.



Og hún blasir hér við mér er ég lít út um gluggann,

Hilsen frá Þóru Björk sem hefur þessa flottu skútu fyrir utan eldhúsgluggann.



Skrifað 21.4.2009 kl. 21:24 af Þóra Bj.Nik.

Bein slóð á færslu

8 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

15.4.2009

Lönd

Jæja, ansi margt hefur drifið á daga mín eins og ykkar frá því 7. apríl er ég bloggaði síðast.  Ekki ætla ég að fara að telja það upp, en eitt get ég sagt, að veðrið hefur verið til þess fallið að fara í gönguferðir.

Við hjónaleysin fórum í göngu þann 5. apríl sl. lögðum við af stað frá innstu Löndum og komum upp á ystu Lönd, veðrið  var frábært í einu orði sagt, en taka skal fram að þessi ganga byrjaði upp úr klukkan níu á sunnudagsmorgni.



Ég sá að það var farið að grænka, svo ég leit í kringum mig.



Þá sá ég meira grænt.  Ég fór að spá hvort framsóknarmenn væru hér á ferð ?
Svo ég leit upp og sá þá bara innstu Lönd.



Því miður var enginn heima, en það var alltaf notalegt að koma heim að Löndum og fá kaffi og nýbakaða parta hjá Fanneyju.  Það rétt sést í gamla traktorinn hans Gutta, þar sem hann stendur við fjósið og horfir yfir túnið og hugsar, einu sinni var ég svo sprækur að ég sló allt þetta tún.

Ég gekk áfram niður á fjörukamb.



Hér í eina tíð var maður búin að brasa mikið í þessari fjöru eins og hér í átt að vitanum....



Eins og sést var morgunsólin falleg, það glitraði á sjóinn og fjaran var full af þara, ég gat ekki stillt mig og snéri mér aftur í átt að gamla bænum og smellti einni í viðbót.



Já, þarna stendur gamli bærinn með alla sína sögu og gömlar minningarnar dúkka upp í kollinn, t.d. allur leikurinn í klettunum en þær voru ófáar stundirnar sem maður var þar, og ekki mátti stíga á blágresið, því það voru blómin hennar Fanneyjar, ég man alltaf þegar hún sagði mér þetta.

Þá lítum við betur í kringum okkur þarna á fjörukambinum og horfum aðeins úteftir.  Þar sjáum við glitta í mið Lönd og náttlega bílinn minn þarna upp á götu.



Og horfum aðeins utar.  Þá sjáum við ystu Lönd.  Þar áttu Sigga og Helgi heima.  Einnig er þarna fallegt kar sem rekið hefur langt upp á land.



Við skulum skoða okkur aðeing betur um.



Já þarna fer Björgvin, mér sýnist hann vera að skoða eitthvað, kannski er það bara vittleysa.



Nei, þarna er gömul gildra, er þetta ekki minkagildra "!!!!!!!!!!!!!




Þetta er fallegur tangi sem gengur út í sjóninn fyrir neðan Landabæina.  Bergið liggur skemmtilega í þessum tanga.



Já þetta er sérkennilegt.



Þarna sem ég stend á berginu sést aðeins í sjóinn á milli tanganna.  Enn er ég að dáðst af þessu bergi.



Já og fann ég ekki berjalyng, þarna á tanganum, hérna vinstra meginn.



Svona lítur tanginn út á hlið.



Já ég er komin beint fyrir neðan mið Lönd, mér sýnist Óttar og Júlla ekki vera heima.
Hann er kannski enn á balli (sjá mynd hér fyrir neðan, sem tekin var í gamla samkomuhúsinu ca 1974).



Nei, er ekki gamla spilið þarna.



Þarna er önnur tóft, jú maður var búinn að leika sér þarna líka.  Ótrúlegt hvað litlir fætur gátur farið um hér á árum áður.



Enn horfir maður heim að gamla bænum og klukkan er farin orðin tíu og ekkert kaffi, jú það hefði verið gott að fá kaffi og parta núna, ég finn lyktina ennþá, umm.



Þá horfir maður fyrir stafninn á gamla húsinu og Landavitinn blasir við, ég hætti að hugsa um kaffið og við höldum ferðinn áfram, en hvað haldið þið....



Jú, hér hefur einhver haldið veislu, því þarna fann ég ígulker....



Gamli bærinn og mið Lönd og áfram held ég í átta að Landavita.



Þar sem ég stend þarna á tanganum og horfi á Kambanes vitann læt ég hugann reika um gamla tíma þegar maður stalst niður á tangann og ég sný mér við og hvað haldið þið...



Jú þetta er Landaviti.  Þarna horfast þeir í augu, Kambanes- og Landavitarnir.



Þegar ég kom nær vitanum sá ég allt í einu tvo "tjöld með himni."  Þeir flugu upp um leið og ég nálgaðist.



Þarna sést í Skrúð.



Þar höfðum við það af að komast upp að vita.



Þarna er greinilega inngangurinn.



Staðið upp við vita og horft yfir fjörðinn.



Þegar ég kíki fyrir hornið á vitanum, sé ég að Björgvin er að fara eitthvað, hann er að fara úr úlpunni, ætli hann hyggi á sjósund, það er svo vinsælt núna. 



Þarna er eitthvað,.....



Nú, Björgvin hefur bara þurft að setjast aðeins niður.



....



Já verðið var dásamlegt, eins og sést.



Mönnum var farið að hitna.



.....



Jæja, þá skal haldið áfram, haldið áfram að ystu Löndum, mér sýnist Toni vera að koma í hlað.   Eða hvað?




Komin upp á veg og þá ætla ég að taka hringmynd,



Útihúsin hans Helga og vitinn...



Túnið hans Helga og kletturinn.



Kletturinn og þjóðvegurinn, skiltið sem á stendur Lönd og er heimkeyrslan að ystu Löndum.



Þá er best að snúa sér við og taka mynd í átta að firðinum.  Björgvin að flýta sér heim  í morgunkaffi.



Já, hérna stóðu útihúsin hans Gutta í Löndum, það var ekki ósjáldan sem maður tók þátt í heyskap þarna og setti í hlöðuna. En nú er ekkert eftir en einn lítll snjóblettur er þar sem húsin stóðu.

Hilsen frá Þóru Björk sem gæti endalaust gengið þessa dagana.

Skrifað 15.4.2009 kl. 21:10 af Þóra Bj.Nik.

Bein slóð á færslu

13 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

7.4.2009

Hálf öld

Í dag er liðin hálf öld síðan vinkona mín leit dagsins ljós.

Þessari ungu dömu kynntist ég er við vorum 12 ára gamlar og hún flutti hingað á Stöðvarfjörð.  Tókst með okkur traustur vinskapur sem staðið hefur alla tíð síðan.  Hún ákvað að dvelja erlendis á þessum merkisdegi og þess vegna ætla ég að birta mynd af henni ungri og sprækri eða 16 ára gamalli.




Til hamingju með daginn Helga mín og megi hann vera sem ánægulegastur.

Hilsen frá Þóru Björk sem sendi afmæliskveðjur vestur um haf.

Skrifað 7.4.2009 kl. 10:29 af Þóra Bj.Nik.

Bein slóð á færslu

7 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

3.4.2009

Þvottavél / Litla Rauða kross búðin

Talandi um þvottavélar.  Eitt árið var þvottavélin í Vinaminni notuð óvenju mikið en þannig var að ég var að vinna allan daginn fram í lok mars og strákarnir fengu að vera á leikskólanum allan daginn þó svo að það væri fullt eftir hádegi og öðrum þeirra ofaukið í "barnaígildum" eins og sagt var.

En þennan vetur var mikil rigning og krakkarnir hjá mér áttu slatta af útigöllum en sá galli var á gjöf njarðar að þetta voru allt óvatnsþéttir taugallar.

Ég var bíllaus þennan vetur og þurftum við að labba með þá í leikskólann, það gekk nokkuð slysalaust bleitu og polla lagað séð á morgnana.

En í kring um ellefu leytið var útivistartími  fram að hádegi.  Garðurinn á leikskólanum var þannig þá að hann var mjög leiðinlegur í rigningum.  Leikskólinn var heldur ekki opinn í hádeginu og því þurftum við að labba heim, með viðkomu í öllum pollum.

Þar féll fyrsti gallinn, því ekki var hægt að nota aftur sama gallan og fyrir hádegi, því eins og ég ritaði áðan voru allir gallarnir ekki vatnsþéttir.

Nýr galli dreginn fram og farið á leikskólann klukkan eitt og byrjað á útivistartíma kannski sem betur fer, því gallarnir voru orðnir frekar sjoppulegir eftir gönguna.

Svo þegar ég náði í þá aftur klukkan fimm, þurfti ég að koma með þriðju gallana því hinir voru blautir og forugir.

Þá var labbað heim og sandkassinn beið rennandi blautur og skemmtilegur, svona ekta til að búa til vegarslóða og allt það sem fylgir.  En ég tek það fram að sandkassin var ca 20 fermetrar.  Svo það var gott svæði til að velta sér í.

En þessi kassi var með síðustu verkum sem pabbi gerði, því hann var alltaf svo hræddur um hraðaksturinn hér í gegn um þorpið og stutt fyrir litlar fætur að trítla niður á veg.

Mamma kallaði þennan vetur, veturinn sem útigallarnir voru þvegnir, en vélin velti alltaf sex göllum á dag og stundum sjö, það fór eftir hvernig gallinn hennar Ernu var eftir daginn.

En í dag var mér hugsa til hennar, því henni fannst oft mikill þvottur hjá mér og hafði orð á því að ekki vildi hún vera þvottavélin í Vinaminni.

Vegna þess að sl. sólarhring hef ég þvegið mikið, við erum að opna fataverslun hjá Rauða krossinum á morgun og erum að taka í gegn fötinn sem verða til sölu yfir fara þau og þvo, datt mér þetta í hug með þvottavélina.

Og svo byrjuðu krakkarnir að tínast heim i páskafrí í dag.

Þegar ég kom inn voru töskur við poka sem biðu við þvottahúsdyrnar eftir að innihaldið kæmist í þvott.


Þessi mynd er tekin þegar búið var að skrúfa upp hillurnar.   Myndasmiður Gentiana.
En endilega kíkið við á morgun í Heimalundi frá k.l 14 til 17, það verður heitt á könnunni, þegar Litla Rauða kross búðin opnar.

Hilsen frá Þóru Björk sem er að fara að skipta um í vélinni.

Skrifað 3.4.2009 kl. 20:50 af Þóra Bj.Nik.

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 24
Gestir í dag: 10
Flettingar í gær: 149
Gestir í gær: 25
Samtals flettingar: 89564
Samtals gestir: 34329
Tölur uppfærðar: 14.3.2010 08:46:52