Flettingar í dag: 131
Gestir í dag: 37
Flettingar í gær: 130
Gestir í gær: 57
Samtals flettingar: 90561
Samtals gestir: 34692
Tölur uppfærðar: 20.3.2010 21:46:21
Blogg
23.2.2009
Fimm tugir.
Laust eftir miðja síðustu öld. Það er skrítið, að maður geti sagt, já ég fæddist laust upp úr miðri síðustu öld. Eða, ég fæddist upp úr miðrið 20. öldinni.
Þetta er eins og að hlusta á mömmu og pabba tala um fólk sem var löngu horfið þegar ég man eftir mér; já hann fæddist laust upp úr síðustu öld. Já þetta er gömul setning.
En samt ekki.
Þetta getum við líka sagt í dag, við sem erum komin á þennan aldur,- ha ha ha skrítið, mér sem finnst við alltaf vera svo ung.
Árgangurinn minn er að klára fimmta tuginn, sá elsti í hópnum er búinn að því en ekki hef ég séð hann Björn bónda í mörg ár, þar sem hann býr út á Nýja Sjálandi. En svo komium við eitt af öðru og fyllum tuginn.
Um helgina fórum við í göngu út í Gvendarnes, þar sá ég þennan staur, gamlan og fúinn.

Ég bað um fyrirsætu,og hér sjáið þið,
tvo gamla og fúna, annar jarðfastur og hinn er fjallageit.

Ég vil óska Björgvin Val til hamingju með daginn, þessi elska, hefur nú fyllt fimm tugi.
Hislen frá Þóru Björk sem hefur aldrei átt svona gamlan mann áður.

17.2.2009
Orðsending
Haldið þið ekki að mér hafi áskotnast bók um samskipti kynjanna eftir Ingimund gamla en bókin var gefin út 1922. Hún var í eigu Helga á Vengi og ótrúlegt en satt, allar blaðsíðurnar eru hvítar. Þannig að þetta hlýtur að vera góð bók, með góðum pappír sem hefur átt að endast lengi.
Gleymdi henni út á Brekku, rita upp úr henni síðar.
Það var alveg dásamlegt veður í morgun þegar ég vaknaði, og ekki var það verra þegar leið á daginn, glampandi sól, svo sterk að smjörið varð að olíu. En núna er komin ausandi rigning. Skjótt skipast veður í lofti.
Vitið þið að afmlisdagar eru hollir! Því fleiri sem þú átt, þeim mun lengur lifir þú.
Hilsen frá Þóru Björk sem er eitthvað svo spekingsleg þessa dagana.

12.2.2009
Í dag
Jæja, þá er best að hætta allri vitleysu og bulli og snúa sér að alvarleika líðandi stundar. Já í dag er alltaf verið að biðja okkur að vera góð við hvert annað, allir áttu að taka slátur í haust - ég líka, rækta börnin sín, geyma símann úti í bíl til að það trufli ekki. Ég gleymi honum allstaðar hvort sem er. Og svo mætti lengi telja, en eitt hef ég ekki gert og ætla ég að leyfa ykkur sem vilja, að lesa það.
Hvernig þér getið lengt líf eiginmannsins!
Fjórir af hverjum fimm sjúklingum, sem fá hjartaslag, eru karlmenn. Þér sem eiginkona, getið gegnt mikilvægu hlutverki í að vernda heilsu manns yðar. Til allra hamingju eru til ýmsar varúðarráðstafanir, sem hægt er að gera, og fara hér á eftir 7 þær helztu:
1. Verið glaðleg í viðmóti. Takið hlýlega og glaðlega á móti eiginmanninum þegar hann kemur heim. Flestir menn verða fyrir svo og svo mikilli taugaspennu í sínum daglegu störfum, svo að æskilegt væri, að þeir gætu slappað af á heimilinum sínum og byggt upp kraftana.
2. Hafið máltíðirnar ljúffengar og hollar, en forðist samtímis fitandi mat, svo að þið getið haldið ykkur grönnum. Og notið umfram allt ekki matmálstímann í umkvartanir og vandamál.
3. Hlaðið ekki á hann samkvæmislífi á vinnudögum, svo að hann fái að minnsta kosti 7-8 stunda nætursvefn.
4. Mikil hreyfing er nauðsynleg. Hvetjið eiginmann yðar til þess að ganga eins mikið og unnt er. Farið í göngur saman, Stutt kvöldganga t.d. er hinn ágætasti svefngjafi.
5. Verið ekki eyðslusöm. Áhyggjur og taugastríð út af óhóflegu heimilishaldi geta verið heilsunni hættulegri en viðskiptavandamálið.
6. Það er mikilsvert að fara í frí með reglulegu millibili. Notadrýgst veður fríið ef það er með breyttum hraða frá hversdagslífinu, ef breytt er um landslag og það verður ekki of mikið skarð í fjárhaginn.
7. Sjáið um að maðurinn yðar fari í hjartarannsókn a.m.k. einu sinn á ári.
Tekið úr:
Eldhúsbókinn
Freyjugötu 14
S: 2-46-66
Janúar 1967
Feitletrun er mín.
Hilsen frá Þóru Björk sem dottin er ofan í gömul fræði og hætt að drepa kýr.

10.2.2009
Eins og kýrin deyr.
Ég hef alltaf haft gaman af allskonar þrautum og eiginlega svona dellukelling í því. Get legið yfir krossgátum í einhvern tíma, tekið svo talnaþrautir og svo framvegis. Ég er samt alveg ferlega léleg í gátum. Alltaf verið svoleiðis.
T.d. núna hef ég mjög gaman af því að drepa kýr.
Kýrin er með einn haus, einn hala, eitt júgur, lárétt.
Kýrin er með tvö horn, tvö eyru og tvö augu.
Kýrin er með fjórar fætur, fjórar klaufir og fjóra spena.
Kýrin er með eina tungu, einn heila, einn framenda og einn afturenda, lóðrétt
Kýrin er með tvær framfætur, tvær afturfætur og tvær nasir.
Kýrin er með þrjár fætur á jörðinn þegar hún lyftir afturfætinum
Kýrin er með fjögur magahólf: vömb, keppur, laki og vinstur.
Þegar ég er búin með eina þraut og þar með fellt eina kúna er ég sæl í það skiptið.
Og ég get brugðið fyrir mér suðurnesja linmæli.
Hilsen frá Þóru Björk sem er í þrautinni "sú dó kú."

9.2.2009
Hvað skal segja.
Þar sem ég hef haft voða mikið að gera við að gera ekki neitt, hef ég ákveðið að blogga aðeins.
Veðrið hefur verið alveg frábært og kemur varla sá dagur að mig langi ekki til að skreppa á hestbak eða fara á skíði. Gallinn er sá að ég á ekki hesta á járnum og í raun ekki reiðfæra hesta lengur. Hrönn er hölt, Dama er ótamin og Léttir er ekki komin á tamningaraldurinn enn þá. Að vísu gæti ég reynt að temja Dömu, en mig vantar alla aðstöðu, og ekki er gott að reka niður staura og laga girðingar í gaddfreðinni jörðinni.
Svo er þetta með skíðin. Ég á ágætis skíði, þó svo að kaupmennirnir í sportbúðunum haldi öðru fram. Þessi dýrinds skíði voru nefnilega versluð í janúar 1978 og hafa reynst alveg prýðilega, þótt að vísu séu skíðin sjálf dálítið þung, en samt...
Það eina er að strákarnir eru vaxnir upp úr öllum sínum græum og komast ekki neitt. Auk þess langar þá í bretti og sama er að segja um Ernu. Þannig að allt þetta bíður betri tíma, eða orðar maður þetta ekki einhvern veginn svona?
Ég hef bara verið að rauðkrossast hér og þar. Baka og elda. Þannig að í dag var þriðji dagur í hangikjeti, ég reikna með að við klárum kjetið á morgun.
Þetta er oftast svona, einhverntíman kemur að því að maður lærir að elda handa fáum. Kannski ekki fyrr en einhver segir, þegar maturinn er borinn fram í þriðja sinn: "'Eg er ekki svona svangur" En ég bíð bara róleg þangað til.
Læt ég þetta duga í bili, ég er svo gjörsamlega andlaus.
Hilsen frá Þóru Björk sem veltir því fyrir sér hvort gott væri að fá sér köld epli.