Blogg
29.1.2009
Liðnar stundir!
Mig bráðvantar enn myndir af fótboltaliðunum, bæði okkur í fyrstu deildnni í kvennaknattspyrnunni og eins meistarflokki karla sem keppti í þriðju deild.
Fyrsta myndin er frá aðalfundi Súlunar 1999 að mig minnir. Þarna vantar að vísu nokkuð marga í hópinn.

Efst:
Alda Hrönn, Kristel, Einar Már, Björn Steinar, Friðgeir, María, Þorgrímur og Halldór
Miðjan:
Erna Valborg, Málfríður, Agnes Klara, Dóra Oddný, Steinunn Pála, Nína, Leif Kristján og Agnar Logi
Neðst:
Jórunn, Axel Þór, Bryngeir, Guðgeir, Dagný Björk, Birkir Fannar, Haukur Árni og Brynjar Óli.
Mér finnst þessi mynd alltaf skemmtileg. Allir svo graf alvarlegir nema Dóra Oddný og Nína.
Axel með líka þennan fína hatt. Eitthvað virðist vera að gerast uppi á sviði því nokkrir eru að gjóa augunum þangað.
Þessi mynd er tekin í víðavangshlaupi, minningarhlaupi um Önnu Maríu Ingimarsdóttur

Frá vinstri: Agnes Klara, Erna Valborg og Dóra Oddný
Landsbankahlaup 1996 held ég, þessir kappar 11 ára.

Björn Steinar, Arnar Snær og Einar Már.
Ekkert hægt að segja um þessa mynd annað en hún er yndisleg. Þvílíkir töffarar.
Og að lokum. Mynd sem tekin var á Eskifirði.

Einar Már og Björn Steinar 10 ára og Friðgeir 9 ára. Þeim var boðið á mót á Eskifirði og unnu allt sem hægt var að vinna. Einar tók allt gullið og Björn Steinar allt silfrið í þeirra aldri og Friðgeir allt gullið í sínum aldri. Þeir eru svalir á þessar mynd.
Hilsen frá Þóru Björk sem langar í skanna.
24.1.2009
Heimalundur
Í dag var stór dagur hjá Stöðvarfjarðardeild RKÍ. Við höfum fengið til umráða Heimalund á meðan hann ekki selst. Opnuðum við með pomp og prakt klukkan tvö í dag og það mættu hátt í 50 manns til okkar og samglöddust með okkur og fengu sér kaffi. Þar sem auglýsingin hljóðaði á þá leið að kaffi yrði í boði svo lengi sem bollar entust, mættu nokkrir með bolla með sér, til að verða ekki útundan. Mér fannst það bara nokkuð gott hjá þeim.
Við höfum verið að setja saman dagskrá fyrir húsið því við viljum nýta það vel. Vona ég að Stöðfirðingar og nærsveitamenn geri það líka.
Hér sést þegar einn sjálfboðaliðinn dregur fánann að húni (við erum svo heppin að þarna er fánastöng og þá getum við loks notað fánann).

Björgvin Valur sjálboðaliði dregur fánann að hún. Veður var frekar leiðilegt rétt á meðan á því stóð en svo birti til.

Eyþór Ármann, Gurra, María, Bjartmar, Auður, Stulli, Hanna Veiga og Natalía. Handverk mömmu þarna í baksýn.

Natalía, Hanna Veiga, Hanna Gréta, Agnar Logi og Jónas Eggert.

Vinur minn, Almar Blær Sigurjónsson (Kristborgar á Borg).

Agnar Logi, Arnlaug Heiðdís og Jónas Eggert. Dista að ath. hvað Jónas er hjartgóður!

Anna, Örn og Sigurjón. Tekið í eldhúsinu í Heimalundi. Myndavélin var eitthvað að stríða mér, eða ég henni, og því eru þessar myndir ekki alveg eins góðar þær ættu að vera. Hinum henti ég.
Hilsen frá Þóru Björk sem er mjög sátt við daginn.
22.1.2009
Hækkandi sól
Ég hef oft spurt mig að því, ef Davíð og þeir úr Seðlabankanum hefðu verið látnir fjúka í upphafi, hefði þessi staða í dag þá ekki verið öðruvísi, hefði þá ekki verið tekið á því sem eftir var allt öðruvísi?
Spyr sú sem ekki veit.
En hér var hundleiðinlegt veður frá kl.16 - 20, bara slyddudrulla. En nú er veðrið orðið gott og vona ég að svo verði áfram.
Á laugardaginn verður stór dagur hér hjá Stöðvarfjarðardeild Rauða krossins en þá opnum við nýtt húsnæði sem við fengum til afnota. Þetta er Heimalundur og hvet ég ykkur til að kíkja til okkar og taka þátt í þessu með okkur. Og sjá hvað er í boði hér hjá deildinni. Það verður alla vega heitt á könnunni á meðan drykkjarílát eru til.
Strákarnir eru í ME og hafa komið heim á föstudögum og farið aftur til baka í skólann, ýmist á sunnudagskvöldum eða mánudagsmorgnum.
Það kostar ekkert að ferðast með rútunum hér innan sveitafélagsins, en af því þeir eru í skóla á Egilsstöðum, þarf að borga 3.200 fyrir að láta þá taka rútuna á mánudögum og finnst mér það of mikið.
En nú kemur Haukur ekki heim um helgina, hann er í Reykjavík, og verður hans sárt saknað eins og systur hans sem er við nám í Háskóla Íslands.
En ósköp verð ég glöð þegar Axel kemur heim á morgun, það er nefnilega alltaf svo gott að fá þessi kríli heim um helgar.
Svona til gamans set ég hér inn mydnir frá því að þeir voru 10 ára og niðursokknir við að tefla.

Já hvað er best að gera í stöðunni?

Og hér eru þeir niðursokknir í að horfa á sjónvarpið.

Hilsen frá Þóru Björk sem hlakkar til að fá krakkana heim.
19.1.2009
Í tilefni dagsins
Ég hef því brugðið á það ráð að fletta myndaalbúmum sem liggja frammi þarna og í þeim eru myndir frá gullaldarárum Súlunnar. Albúmin voru þrjú og ég hef tekið eitt í hvert skipti.
Nú er ég búin að skoða þau í rólegheitum, eitt í hverjum tíma sem ég hef farið í þannig að ég tel að nú geti ég skoða þau öll í einu í næsta tíma.
Eftir það get ég snúið mér alfarið að teygjuæfingum og skoðað myndirnar sem eru á veggjunum.
Þær eru yfirgrip úr starfi Súlunnar s.l. 80 ár. Læt ég þetta duga þessa vikuna og jafnvel þá næstu.
Það hefur lítið gerst hér hjá mér, nema mæta í vinnuna og gera það sem þarf að gera og tæplega það.
Vorum út í Heimalundi í kvöld að setja níður tíma fyrir Föt sem framlag. Næst verður það ungmennastarfið og fleira þar á eftir, og vona ég að við getur farið að reka húsið í næstu viku. Þá ætti allt að fara að smella saman.
Hilsen frá Þóru Björk sem er mjög ræktanleg þessa dagana.
15.1.2009
Lóð!
Í gær rann upp merkisdagur hér á Stöðvarfirði en þá var tækjasalurinn opnaður. Var margt um manninn og er vonadi að það verði áfram, þ.e.a.s. að salurinn verið notaður en ekki bara skoðaður.
Súlan hafði fyrir þvi að láta mann fá samviskubit, var með myndir í albúmi, og þá sást best hvernig maður leit út fyrir x mörgum kílóum síðan. Þannig að nú hugsar maður og verður síðan að framkvæma.
Það verður tekið á því og öll lóðamörk látin víkja.
En ef þið viljið vita hvernig veðrið er, þá fer maður bara út - s.s. það er slyddu slabb.
Hilsen frá Þóru Björk sem virðir engin lóðamörk lengur.

