Flettingar í dag: 62
Gestir í dag: 20
Flettingar í gær: 104
Gestir í gær: 43
Samtals flettingar: 90750
Samtals gestir: 34762
Tölur uppfærðar: 22.3.2010 14:00:17

Blogg

23.10.2008

Kína

Núna mitt í öllum þessum þjóðfélagsleiðindum, ætla ég að skrifa litla sögu.

Þannig var að í sumar, nánar tiltekið í maí var mér gefin lítil gjöf, svona bréfaklemmutré.  Í öskjunni með trénu var miði sem á var skrifað happadrættisnúmer, sem ég svo átti að skrá inn í tölvuna á ákveðin stað.  Ég var svo sem ekkert að flýta mér að þessu, þar sem ég hef nú aldrei unnið neitt nema að vísu fengið endurgreitt hluta úr happdrættisári Háskólans (á miða sem krakkarnir eiga).

En að lokum skráði ég mig inn, en það skal tekið fram að samstarfskona mín var ítrekað búin að spyrja hvort ég ætlaði ekki að skrá númerið inn.

Það var ákveðið að öll fjölskyldan skyldi fara til Spánar í sumar og vorum við búin að "kaupa" þá ferð.  Og hún átti að vera frá 24 júli til 7 ágúst.    Móðirin þóttist vera mjög forsjál þegar hún gerði þetta því þarna voru undir tvær samkomuhelgar á Íslandi.

Eins og kannski margir vita er ég formaður í Rauða kross deildinni hér og í mig er hringt hægri vinstri að biðja um styrktarlínur.  Einn daginn var hringt og ég svara ............... góðan dag.   Konan hinum megin á línunni segir, það er maður í símanum, hann er mikið búin að vera að ná um þig í dag.  Nú hver er það, spyr ég.

Hún vissi það ekki en sagði að símanúmerið byrjaði á 5 og endaði á 00, og segir svo, æ ég er búin að missa línuna, allt í lagi svara ég, þetta er örugglega einhver að biðja um styrk.  Ég get ekki tekið það. (Það fer nefnilega ósköp í taugarnar á mér þegar ég er elt upp í vinnuna til að biðja um styrktarlínur).

Ég er búin að ná línunni svara konan hinum megin.  Og í því kemur maður í símann, og hann kynnir sig og án þess að hugsa ætlaði ég að fara að segja því miður og þakka þér fyrir að hringa, en ég ætla ekki að styrkja neinn núna.  (Ég er nefnilega svo yfirmáta kurteis).

En ég komst ekki til að segja þetta því maðurinn hélt áfram að tala og ég fór að velta fyrir mér nafninu á fyrirtækinu sem hann sagðist vinna hjá.  Valitor, úps, hugsaði ég, ætli posinn hafi verið bilaður þegar ég skilaði honum aftur eftir Gugga-tónleikana (Gat ekki munað að Gugga tónleikarnir voru í ágúst á s.l. ári.).

Maður getur nefnilega oft hugsað hratt og það langt aftur í tímann á mjög skömmum tíma.

Þá segir hann: Þú varst dregin út í happadrættinu okkar og fékkst fyrsta vinning,  Ég fraus!
Já þú vannsta aðalvinninginn þ.e. fer á opnunarhátíðina á Ólympíuleikana í Kína.

En ég get alveg sagt ykkur það að til að gera langa sögu stutta þá trúði ég þessu ekki almennilega fyrr en  ég var búin að fara í ferðina.

Ferðin út var frá 6. ágúst til 11. ágúst, og við áttum að koma heim frá spáni 7. ágúst.  Þetta reddaðist með ofurgreiðslum til Heimsferða, vegna breytinga á flugi (sem byrjaði á að mér var boðið 31 þús í breytingargjald sem var svo leiðrétt því það átti að vera 74 þús, en ég náði því niður um heilar 10 þúsog endaði í 64 þús sem eru góð laun fyrir 5 mínútna vinnu).



Það var þá þegar ég ákvað að fara út fyrir landsteinana, það var það gert með trompi.

En ef einhver hefur áhuga þá eru myndir í myndaalbúmi sem heitir einmitt Kína inni á albúmasíðunni minni hér fyrir ofan. 

Eða með þvi að smella hér.

Hilsen frá Þóru Björk sem skemmti sér frábærlega í Kína.

Skrifað 23.10.2008 kl. 10:06 af mér

Bein slóð á færslu

6 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

20.10.2008

20.okt. 79,98,99

Það má segja það  þessi dagur sér sérstakur í mínum ættboga þótt sá bogi sé ansi spenntur og spanni allt upp í 7 liði.

Í færslunni hér fyrir neðan er mynd af Þorgrími í Sætúni að flá sel.  En í dag eru nákvæmlega 29 ár síðan hann var jarðaður, en hann var "föðurbróðir" minn ( ég var skyld pabba í 7. lið.)

Þennan dag fyrir 10 árum síðan dó fósturmóðir mín, mikill kvenskörungur.  En var í raun móðursystir mín.


Þau pabbi eru á þessari mynd sem er tekin 1980.


Og svo fyrir 9 árum fæddist lítill gullmoli sem heitir Þóra Rún. 

Hún er "sonardóttir" fóstursystur minnar eða litla frænka mín í 6. lið.


Image and video hosting by TinyPic

Til hamingju með daginn Þóra Rún.

En úti er skíta kuldi og vetrarlegt, mér sýnist hann blása úr norð-vestri! Það er nefnilega farið að hlýna aðeins.

Hilsen frá Þóru Björk sem er að fara að drífa sig í vinnuna.

Skrifað 20.10.2008 kl. 11:03 af mér

Bein slóð á færslu

11 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

18.10.2008

Sláturtíð

Ég fékk þessa mynd senda, þetta er hann Þorgrímur í Sætúni og mér þótti við hæfi að setja hana inn þar sem bæði er sláturtíð í fullum gangi og svo eru akkúrat 29 ár síðan hann lést.  Hann er að vísu ekki að flá lamb, en það skiptir ekki öllu máli en ekki veit ég hvað þessi mynd er gömul.



Hilsen frá Þóru Björk sem horfið á sólina skína yfir Kambanesið.

Skrifað 18.10.2008 kl. 16:03 af mér

Bein slóð á færslu

10 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

14.10.2008

Gardínur

Ég fékk ábendingu frá Sigurjóni í Sunnuhvoli, að ég ætti að fara að hella uppá.  Ég ákvað að verða við þeirri bón en hann kom ekki í kaffi, kannski hefur þetta verið frekar þunnt kaffi, svona kreppukaffi. 

En, Mogginn lýgur aldrei.  Ég las í Morgunblaðinu um helgina að gluggatjöld væru andlit heimilisins.  Þar stóð meðal annars: "Það væri talsvert hægt að sjá hvernig heimilin væru eftir því hvernig gardínur væru fyrir glugganum."   Ég leit í kringum mig hér innan dyra og eins og mig minnti, var voða takmarkað magn af gardínum hjá mér, þannig að þetta á við nokkur rök að styðjast, það er nefnilega eiginlega ekkert inni hjá mér.

Jú ég er með kappa í eldhúsinu, sem ég hannað alveg sjálf, og í eldhúsinu er þetta venjulega - borð, stólar og heimilstæki, þessi allra nauðsynlegustu.

Sigurjón minn, ég á líka könnur til að leggja á  borðið, svo ég geti hellt kaffinu í þegar þú kemur í heimsókn, en ég á ekkert export.

Hilsen frá Þóru Björk sem er að velta því fyrir sér hvort hún eigi að setja upp gardínur til að það líti út fyrir að eitthvað sé innan dyra.

Skrifað 14.10.2008 kl. 18:24 af mér

Bein slóð á færslu

11 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

7.10.2008

Vinnustaðir

Jæja, það hlaut að skýrast með þetta eins og önnur fyrirtæki sem ég hef unnið hjá.  Það er ekki einleikið hver öll fyrirtæki sem ég hef unnið hjá sameinast, fara yfirum eða lenda í einhversskonar klandri.
.
Hér er ferillinn:

Hraðfyristihús Stöðvarfjarðar sameinaðist öðrum og valt að lokum.
Samvinnubankinn var keyptur af Landsbankanum sem varð einkarekinn og þið vitið stöðuna í dag.
Sparisjóður Vélstjóra varð Byr (gerðist reyndar eftir að ég var þar).
Útvegsbankinn endaði sem Glitnir. (var ríkisbanki þennan vetur sem ég vann þar).
Stöðvarhreppur sem gekk inn í Austurbyggð sem svo gekk inn í Fjarðabyggð.
Heilsugæslustöðin og Lyfja í sama batterínu, vann þar í afleysingum á móti hálfdagsvinnu í Kaupfélaginu.  Lyfja lokaði Stöðvarfjarðarútibúinu og bar allt góssið út meðan ég var í hádegismat og aðalstarfsmaðurinn í viku fríi. 
Kaupfélag Stöðfirðinga varð gjaldþrota.
Stöðfirska verzlunarfélagið varð gjaldþrota.

En eigum við ekki að vera jákvæð, það hellirignir og er niðadimmt ennþá.
Vonum bara það besta.

Hilsen frá Þóru Björk sem veltir vöngum um framhaldið.

Skrifað 7.10.2008 kl. 8:58 af mér

Bein slóð á færslu

11 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 62
Gestir í dag: 20
Flettingar í gær: 104
Gestir í gær: 43
Samtals flettingar: 90750
Samtals gestir: 34762
Tölur uppfærðar: 22.3.2010 14:00:17