Flettingar í dag: 43
Gestir í dag: 23
Flettingar í gær: 154
Gestir í gær: 44
Samtals flettingar: 90627
Samtals gestir: 34722
Tölur uppfærðar: 21.3.2010 12:11:08
Blogg
31.8.2008
Smá blogg
Ég er að reyna að setja inn myndir en það gengur mjög hægt þar sem bæði ég og netið erum mjög hægfara þessa dagana.
Berin bíða t.d. ekki eftir mér.
En - allavega er fyrsti hluti mynda úr Spánarferðinni kominn inn í myndaalbúm með smá sögu, ef einhver hefur áhuga.
Hilsen frá Þóru úr berjalöndurm Stöðvarfjarðar.

23.8.2008
Áfram Súlan, áfram Ísland
Áfram Súlan, sýnið hvað þig getið með boltann í netið.
Koma svo, stelpur, þið getið þetta.
Ákveðnar Súlustelpur.
Keyra, keyra, keyra.
Tæta, tæta, tæta.
Svona hljómuðu hvatningarópin hér í denn á hliðarlínunni og eflaut gleymi ég einhverjum. En til margra ára héldum við úti 11 manna stúlknaliði í annari deild í kvennaknattspyrnu og svo komumst við í fyrstu deild sem þá var efsta deildin.
Þetta voru dýr ferðalög, suður og norður til að keppa, en við vorum duglegar í fjáröflunum og sprækar á vellinum. Aldurinn var að vísu nokkuð dreifður en við vorum á bilunu frá 14 ára til 25 ára en flestar í hópnum voru fæddar ´67, ´68 og ´69 en þær byrjuðu 14 ára.
Hér ætlaði ég að setja inn mynd af Súluliðinu, en þar sem ég á enga mynd gat ég það ekki, er samt búin að reyna að verða mér út um hana, en vonandi gengur það.
Er einhver þarna úti sem vill senda mér mynd?
Þetta var á meðan ég var í hópnum. Þó svo að við sigruðum hvern leikinn á fætur öðrum komumst við aldrei á blað hjá íþróttafréttamönnum og þá eins og nú voru stúlknaliðin núll og nix. Og aldrei var fjallað um okkur frekar en hin liðin í t.d. íþróttablaði Morgunblaðsins.
En það var aldrei að maður kæmist ekki í íþróttafréttirnar og það á forsíðu. Verandi á bekknum.

(Ég stal þessari mynd af annari síðu, örin á ekki að vera, laga það við tækifæri).

Út leiknum Ísland - Rússland
Já, leikurinn Ísland - Rússland, sem var fyrsti leikurinn hjá STRÁKUNUM OKKAR, eins og sagt er ef þeim gengur vel, spiluðu þeir yfivegaðir, eins og þeir hafa gert allan tímann. En það hefði ekki verið amalegt að vera á leiknum í gær, og eins verður örugglega gaman á leiknum á morgun. Árangur þeirra er hreint út sagt frábær.
Áfram Ísland.
Hilsen frá Þóru Björk sem er stoltur Súluungi.

12.8.2008
Lent !
Jæja, þá er ég búin að fara í tvær, takið eftir, tvær utanlandsferðir í sumarfríinu mínu.
Báðar alveg dásamlegar.
Fyrri ferðin var til Spánar með alla fjölskylduna mína, það hefur verið draumur minn í mörg ár að fara eitthvert með krakkana áður en þau yfirgæfu æskuheimilið.
Þar sem tímamót eru í lífi þeirra og okkar - þ.e. Haukur og Axel kláruðu 10. bekk og Erna stúdentspróf þá verða hjá okkur hjónaleysunum heilmikil viðbrigði að vera bara tvö í kotinu.
Við vorum á Spáni í 2 vikur og voru þær hreint alveg frábærar og þótt svo hitinn færi um og yfir 40 gráður á góðum dögum, þá var hann aldrei óbærilegur.
Síðari ferðina vann ég í happdrætti og var sú á opnunarhátíð Olympíuleikanna í Beijing.
Sú ferð var alveg dásamleg. Eins og margir hafa tekið eftir er ekki hægt að fara leint í Kína en landið reyndar mjög fámennt og smátt. Mér skilst að við höfum verið í stórum aukahlutverkum hjá sjónvarpsmyndatökumönnunum á leiknum Ísland - Rússland. (Tekið skal fram að bróðir minn tók ekki upp leikinn, hann var annarsstaðar).
En svona er þetta, það er ekki hægt að vera aðal allstaðar.
Hilsen frá Þóru Björk sem er alsæl eftir sex flugferðir og tvær langkeyrslur í sumarfríinu.

9.8.2008
Island Spànn Island Kina
Kannski frekar, Stodvarfjordur , Fuengirola, Reykjavik, Beijing.
Meira seinna.
Kv.
Hilsen frà Thoru Bjork, sem vill làta vita af sér.