Flettingar í dag: 127
Gestir í dag: 35
Flettingar í gær: 130
Gestir í gær: 57
Samtals flettingar: 90557
Samtals gestir: 34690
Tölur uppfærðar: 20.3.2010 21:20:02

Blogg

29.6.2008

Litla bæjarhátíðin

Nákvæmlega kl. 15:50  í dag fór að rigna, fyrst ósköp rólega og núna í kvöld er eins og hellt sé úr fötu.

Annars er búið að vera alveg ágætis veður um helgina - sól  en það hefði mátt vera aðeins heitara, annarstaðar en upp við suðurvegg.

Gekk ekki yfir Stöðvarskarð, svaf ekki yfir mig en nennti ekki á dönskuskónum.

Ég tók ekki þátt í Róbert Jack mótinu, hefði sómt mér vel í marki, en þurfti ekki að vera þar sem stelpurnar fengu ekkert mark á sig.

Ég tók þátt í golfmótinu og spilaði í fyrsta skipti en vann ekki, auk þess yrði það mjög sérstakt ef svo væri.

Ég tók ekki þátt í kassakappróðri í sundlauginni, er of gömul og þung í það, ég reikna með að kassinn hefði sokkið.  Samt ekki víst.

Ég tók ekki þátt í hlaupi til minningar um Önnu Maríu, ég væri ekki komin í mark ennþá.

Ég drakk kaffi og át kökur en nennti ekki að bíða eftir grillinu.  Trúlega of seig á það.

Búin að slá 1/6 af kirkjugarðinum.

Rúnar Arnars kom og vígði nýja sparkvöllinn, alltaf gaman að hitta Rúnar.

Inga Teits hemlaði hér niður í gærmorgun á suður leið - það var gaman að hitta hana en við höfum örugglega ekki hist í 10 ár.

Alla Birgis kom og kíkti við í gær og dag, alltaf gaman að fá hana í heimsókn.

Jóhanna Hauks, Örvar og Lilla kíktu við eftir að hafa skokkað í minningarhlaupinu þ.e.a.s Jóhanna,  hin horfðu á.

Þá er helgin upp talin held ég.

Hilsen frá Þóru Björk sem þakkar öllum fyrir hittinginn um helgina.

Skrifað 29.6.2008 kl. 22:51 af mér

Bein slóð á færslu

11 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

26.6.2008

Sætt símtal

Ég var á leiðinni norður 16. júní, var stödd á Mývatnsöræfum og sólsetrið var mjög fallegt.  Hringir þá ekki síminn.   Ég tek náttlega símann og svara.
Ég: Þóra:
Vinkonan: Helga hér, hvar ert þú?
Ég: Ég er að fara að skoða ísbjörninn.
Vinkonan: Ha, ég ætla bara að biðja þig að fara ekki varlega. (Lesist hægt).

Finnst ykkur þetta ekki sætt?  
Segir maður svona við besta vin sinn?
En þetta gleymist seint, svo er alltaf verið að segja að ég tali í rugli við og við.

Hilsen frá Þóru Björk sem sá ekki ísbjörninn nema á mynd.

Skrifað 26.6.2008 kl. 23:45 af mér

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

20.6.2008

17. júní

Þann 17. júní kl. 10 árdegis, rann stóra stundin upp, föngulegur hópur verðandi nýstúdenta gekk í salinn og haldnar voru skemmtilegar ræður.  Elsti stúdentinn sem hélt ræðu, hafði útskrifast fyrir 70 árum.  Þetta var samt allt mjög hátíðlegt og þegar  ein klst. var búin af dagskránni, stóðu allir upp að beiðni skólameistara og gerðu leikfimisæfingar og svo var gripið til æfinganna með reglulegu millibili út dagskrána.
Það var stolt móðir sem fylgdist með þegar dóttin tók við skirteininu sínu frá Jóni Má.



Erna Valborg Björgvinsdóttir nýstúdent frá MA.  Myndina tók Jóhanna Hauks



Haukur Árni, Erna Valborg og Axel Þór.

Myndirnar voru teknar fyrir framan skólann.  Ragnheiður, Tóti og Jóhanna Hauks komu  norður og voru með okkur þennan dag og það var rosalega gaman að hafa þau og mikið fjör hjá okkur.

Ég þakka þeim öllum fyrir daginn, þetta var frábær dagur í alla staði.

Hilsen frá Þóru Björk sem er montin þessa stundina.

Skrifað 20.6.2008 kl. 0:00 af mér

Bein slóð á færslu

21 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

10.6.2008

Of stuttur sólarhringur

Ég hef komist að því að mig vantar fleiri klukkutíma í sólarhringinn.  Ég hef t.d. ekkert komist á netið lengi og svo mætti lengi telja.

Ég þurfti að heiman í dag til að fá mér ökuskírteini, vegabréf, stimpil trygginafélagsins til að strákarnir fengu æfingaleyfi, stimpil hjá sýslumanni og svo þurfti náttlega að taka af okkur myndir til að setja í okkar skírteini.  Haldið að þetta sé ekki ágætis morgunverk?

Og svo smá um mig og trygginga-umboðs-menn/konur.

Í fyrra þegar Haukur ætlaði að fá æfingaleyfi á Súkkuna, þurfti náttlega tryggingastimpil og við drifum okkur á Reyðarfjörð en þar var umboðið.  Jú gaurinn var í sumarfríi - en er enginn afleysingamaður? - jú hann ákvað að taka sér sumarfrí í dag.  Þá var það Egilsstaðir næst.  Þetta er náttúrulega rugl en samt satt og Dandý reddaði mér.

Svo þegar stimpillinn var kominn, drifum við okkur á löggu/sýsluskrifstofuna.  Jú, stóð þá ekki þar, lokað vegna jarðarfarar svo við brunuðum á Eskifjörð og rétt náðum fyrir lokun.  Hvað haldið þið að þetta kosti?  Þarna er um 200 kílómetrar fram og til baka.

Svo að deginum í dag.

Tryggingar-umboðsaðilinn var s.s. á Egilsstöðum þannig að við ákváðum að gera þetta bara allt þar en æða ekki á Eskifjörð.  Nei þá var hann ekki við og ég brást hin versta við því sá næsti var á Hornafirði, en þetta reddaðist allt eins og mér einni er lagið og ekki lokað á sýsluskrifstofunni vegna einhvers, en mér skilst að það sé æði oft þannig.

En þurfti þá ekki helv. bensínið að hækka upp úr öllu valdi í dag. 
Þetta er ekki réttlátt fyrir pyngjuna og allt annað ofaná.

Hilsen frá Þóru Björk sem á ekki pyngju.

Skrifað 10.6.2008 kl. 21:21 af mér

Bein slóð á færslu

10 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

6.6.2008

Vöxtur

Þá er fyrsta vikan af júni að klárast.



Og gróðurinn allur í miklum vexti eins og allir vextir á Íslandi.

Hilsen frá Þóru Björk sem þolir ekki vaxtavexti.

Skrifað 6.6.2008 kl. 9:37 af mér

Bein slóð á færslu

5 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 127
Gestir í dag: 35
Flettingar í gær: 130
Gestir í gær: 57
Samtals flettingar: 90557
Samtals gestir: 34690
Tölur uppfærðar: 20.3.2010 21:20:02