Flettingar í dag: 60
Gestir í dag: 27
Flettingar í gær: 229
Gestir í gær: 91
Samtals flettingar: 89829
Samtals gestir: 34437
Tölur uppfærðar: 15.3.2010 15:30:39

Blogg

27.3.2008

Dekur

Ég hef verið að flakka um bloggheiminn svona af og til og þar er víða skrifað eitthvað á þessa leið: þú þarft að dekra meira við þig, eiga tíma með sjálfri þér í dekur, hugsa vel um þig með dekri, láta dekra við þig  og  svo framvegis.  En allt er þetta á kvennasíðum  ég hef aldrei séð svona á karlasíðum.
Um daginn hitti ég mann og þegar við vorum búin að spjalla smá, hafði ég á orði að hann væri búinn að raka síg.
Jú, ég ákvað að dekra smá við mig í morgun! (greinilega búin að lesa nokkrar síðurnar sá).

Hilsen frá Þóru Björk sem ákvað að dekur dagsins yrði við þvottavélina.

Skrifað 27.3.2008 kl. 8:49 af Þóra Bj.Nik.

Bein slóð á færslu

10 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

26.3.2008

Göngutúr

Við Björgvin fengum okkur hressingargöngu um daginn, veðrið var mjög fallegt og ekkert svo kalt. 
Þegar við komum inn að Strandarhúsum tókum við beygjuna niður að þeim.  Mig langaði að sjá hvernig veðrið hafi breytt þeim í einni hviðunni.
Inni í húsunum sóð gömul dráttarvél, hún var geymd þar en hún fauk ekki með húsunum.  Vélina átti Gutti í Löndum.
Þessi gamla vél rifjaði upp margar minningarnar, mér þótti þessi vél alltaf svo flott þótt hún væri ekki eins nýtískuleg og dráttarvélin hans Þorgríms í Sætúni  (sú var líka alveg ný.) Sú var líka með sæti á bretti fyrir farþega.
Sérstaklega fannst mér stýrið alltaf svo skondið, svona stöng á hliðinn á henni.
En Gutti var alltaf flottur þegar hann var á henni, með húfuna skakka á höfðinu, og ég skildi aldrei hvernig hún tolldi svona á honum.
En ég ákvað að taka nokkrar myndir af vélinni frá öllum hliðum, en það eru fleiri myndir í albúmi undir  2008, vetrarmyndir.




Æ, hún er farin að líta upp á landið blessunin.  Ég fór að velta því fyrir mér þegar ég var að skoða hana, hvort upprunalegt loft væri í afturdekkjunum.
Ég man þá tíð þegar þessi vél fór framaf stallinum fyrir ofan gamla kaupfélagið og að ég held skemmdist ekkert og svo heppilega vildi til að enginn meiddist.
En svona líta húsin út í dag, reyndar búið að hirða brakið sem fór út um allt en samt!


Ég veit að ofan úr dalnum þarna fyrir ofan geta komið slæmir hvellir.

Hilsen frá Þóru Björk sem labbar um á snjó sem heldur.

Skrifað 26.3.2008 kl. 21:31 af Þóra Bj.Nik.

Bein slóð á færslu

6 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

22.3.2008

Laugardagurinn stutti

Í kvöld borðuðum við kl. 20:30 - ástæðan var sú að við vorum að gíra okkur niður eftir föstudaginn langa.   Á morgun borðum við svo á réttum tíma.

En ég var að skoða albúmin mín áðan.  Þar á meðal voru myndir úr fermingaveislunni hennar Bryndísar Þóru .


Bryndís Þóra, prinsessan sjálf. 

Ég er svo góð í myndatökunni, samanber að öll rauðu augun á myndunum mínum.

Svo ákvað ég að láta inn eina mynd af gestum frá Stöðvarfirði, sem ég hef ekki séð, mis-lengi.



Fremst er Halla Kjartans, svo kemur "Gummó" Guðmundur og Rósa Guðný.


Hilsen frá Þóru Björk sem er á fullu að gíra sig niður í rétta lengd á deginum.



Skrifað 22.3.2008 kl. 22:18 af Þóra Bj.Nik.

Bein slóð á færslu

8 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

20.3.2008

Páskafrí

Þá er komið páskafrí og til gamans má geta þess að ég setti á vefmyndavélina á Eyjunni og gerði sambanburð á umferðinni hér og niður Laugaveg/Bankastræti.
Þar sem ég sit við gluggann hef ég minna svæði til að hofra á en vefmyndavélinn sýndi en á þessu tímabili sem ég var með hana uppi fóru fleiri bílar eftir Fjarðarbrautinni en eftir Laugaveginum.
Svona getur þetta verið á Íslandi.

En úti er kuldalegt; norðvestan er mér sagt yfir borðið.  Til stendur að fara á Fáskrúðsfjörð og ná  í vagninn sem Jóhanna flutti austur fyrir Axel.

Eigið góðan dag.

Hilsen frá Þóru Björk sem telur bílana á Laugavegi og Fjarðarbraut.

Skrifað 20.3.2008 kl. 10:44 af Þóra Bj.Nik.

Bein slóð á færslu

10 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

18.3.2008

16 ára afmælisdrengir

Til hamingju með daginn.

Það var fyrir sextán árum !


Og svo í dag.

En í dag fóru krakkarnir út á Nes að skoða hestanna og á þessari mynd, hér fyrir neðan, sést hvað þeir eru ólíkir.

Svo ólíkir að þeir fara ekki í sömu átt.



En samt svo líkir.



Haukur Árni að koma labbandi.



Axel þór að spá og spekulera.



Haukur að klappa Létti.



Axel að klappa Létti.



Gamla mín.




Erna að kveðja Létti.



Léttir var mjög forvtinn um það hvernig myndavélin virkaði.



Svo var haldið heim, en á hvaða bíl skyldu krakkarnir hafa verið?

Hilsen frá Þóru Björk sem situr og bíður eftir matnum.

Skrifað 18.3.2008 kl. 16:08 af Þóra Bj.Nik.

Bein slóð á færslu

13 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

14.3.2008

Ég þurfti að skreppa

Skoða nánar

12.3.2008

Rölt

Skoða nánar

9.3.2008

Spurning

Skoða nánar

5.3.2008

Kaffilaust á laugardagsmorgni

Skoða nánar

4.3.2008

Hvurslags er þetta?

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 60
Gestir í dag: 27
Flettingar í gær: 229
Gestir í gær: 91
Samtals flettingar: 89829
Samtals gestir: 34437
Tölur uppfærðar: 15.3.2010 15:30:39