Flettingar í dag: 24
Gestir í dag: 10
Flettingar í gær: 149
Gestir í gær: 25
Samtals flettingar: 89564
Samtals gestir: 34329
Tölur uppfærðar: 14.3.2010 08:46:52
Blogg
29.1.2008
Fimmtán árum seinna

Ég átti hreint frábæra kvöldstund s.l. föstudagskvöld. Þannig var að á föstudagsmorguninn voru tónleikar í skólanum, þar sem Pétur Maté var að spila klassíska tónlist fyrir krakkana. Það var alveg dásamlegt á að hlýða og fylgjast með krökkunum sem sátu og hlustuð og þeim fannst virkilega gaman.
Og um kvöldið bauð hann upp á tónlist og kaffi í kirkjunni þar sem hann hefið ekki komið "heim" svo lengi og spilað fyrir heimamenn. Þetta var alveg frábær stund og yndislegt að hlusta á svona frábæran listamann. Svo eftir tónleikana var kaffi og spjall. Mjög fínt. Já tíminn líður hratt, það eru 15 ár síðan hann flutti héðan.
Ég mæli með að ef hann heldur tónleika nærri ykkur, að drífið ykkur og njótið.
Hilsen frá Þóru Björk sem þótti frábært að fylgjast með fingrafiminni á píanóinu.
25.1.2008
Rúnar V. Arnarson
Ég fékk senda slóðina með viðtali við gamlan og góðan vin, sem er enginn annar en Stöðfirðingurinn og Súlumaðurinn Rúnar Vífill Arnarson en hann hefur ekki fengið boltann síðan á Hvalnesi. Hér er slóðin.
Fyrir ykkur sem hafið gaman af, endilega skoðið sjónvarpsviðtal við hann.
Ég óska honum til hamingju með gullmerki KSÍ, fyrir vel unnin storf.
Hilsen frá Þóru Björk sem finnur ekki boltann.
Fyrir ykkur sem hafið gaman af, endilega skoðið sjónvarpsviðtal við hann.
Ég óska honum til hamingju með gullmerki KSÍ, fyrir vel unnin storf.
Hilsen frá Þóru Björk sem finnur ekki boltann.
23.1.2008
U 3630
Einu sinni átti pabbi hvítan Patrol-pikup Sterkur bíll og mikið notaður, hann keypti bílinn nýjan og palllausan og flutti timbrið í pallinn á honum austur, bundið við grind bílsins, ásamt slatta af puttalöngum sem voru á austurleið. Eftir einhver ár seldi hann bílinn og nýr eignadi var HSS og var hann notaður á vélaverkstæðinu og sprautaður gulur.
Síðan lenti hann í hendurnar á bróður mínum sem er mikill bíla-dellu-áhuga-smíða-breytingamaður. Og bíllinn varð aftur hvítur.
Hér sjáið þið afraksturinn, en eitthvað hefur nú breyst í bardúsinu hjá Óla Jóni.

Hilsen frá Þóru Björk sem spáir í hvað hafi breyst.
20.1.2008
Glitský
Í dag fór ég í göngutúr, það var frekar hált og snjór yfir svellinu, þannig að hákan jókst um heilan helling.
Fyrir vikið horfði ég alltaf niður fyrir tærnar á mér, en loks þegar ég leit upp, blasti við mér ægifögur sjón. Himininn var allur rauður og þakinn glitskýjum. Þegar ég kom heim tók ég myndir af því sem eftir var. Birtan skilar sér ekki nogu vel, eða allavega fannst mér þetta fallegra auglitis til auglitis.
En ég leyfi ykkur að njóta afrakstursins en fleiri myndir er að finna í myndalbúminu Glitský..

16.1.2008
Snjór
Það hefur kyngt niður snjó. Ég hef ekki séð svona mikinn snjó hér "síðan ég var á Hvalnesi." Ætli hann sé ekki um 10 cm jafnfallinn?
Hilsen frá Þóru Björk sem klofar snjóinn í mitti.